Orðrómar á orðróma ofan
Jæja þessi vika er svosem búin að vera róleg eftir tapið gegn West Ham. Það eina sem hefur ruggað bátnum er vælið í Mourinho sem virðist ekki geta komið út úr sér skynsamlegri setningu þessa dagana.
Sumir fjölmiðlar átta sig hins vegar á gúrkunni og taka á henni með því að þeyta fram fregnum eins og: Beckham til United!, Klose kemur í sumar! og Bayern losar gripið um Owen!. Ég hef litlar áhyggjur af þessum sögusögnum og lít bara á þær sem bónus ef eitthvað af þeim rætist.
Hinsvegar erum við að fá gífurlegan liðsstyrk eftir tíu daga. Þá meina ég ekki bara hann Henrik Larsson og mörkin hans, heldur á ég við lánsmennina okkar sem hafa flestir verið að standa sig frábærlega með sínum liðum. Pique hefur verið í láni hjá Real Zaragoza í vetur, þeir standa nú í fjórða sæti í La Liga og hefur Pique verið byrjunarliðsmaður hjá þeim. Góð viðbót. Rossi hefur verið í kæli hjá Newcastle og er ótrúlegt að Roeder, stjóri Newcastle, skuli ekki getað notað þennan markheppna Ítala. Góð viðbót. Phil Bardsley er að koma úr láni frá Rangers í Skotlandi og hefur spilað sjö leiki og meira að segja skorað mark í einum þeirra. Þessi hægri bakvörður er frábær viðbót og gott að hafa svona mann til þess að taka við af Gary Neville ef hann hættir einhvern tímann. Sá síðasti sem ég nefni er svo Kínverjinn okkar hann Dong Fangzhou. Eins og aðrir hef ég enga hugmynd um hvað þessi leikmaður hefur í sér. Hinsvegar er Alex búinn að bíða í rúm tvö ár eftir að hann fái atvinnuleyfi þannig að eitthvað hlýtur að vera spunnið í kappa.
Hver þarf rússagull?
