jún. 06, 2004

Hænuskref, Bragi, hænuskref

Núna eru liðnir þrettán dagar síðan ég játaði síðast syndir mínar fyrir heilögum internetguði. Þessi pása var kærkomin og vil ég þakka ykkur kærlega fyrir þolinmæðina sem mér hefur verið sýnd vegna fjarveru minnar. Hún er tilkomin af neitun Ólafs. Ég hugsaði með mér. ,,Ég á ekki eftir að geta hætt í skrifum um þetta atvik og þarafleiðandi mun ég fæla frá trygga lesendur í hrönnum. Best að vera ekkert að skrifa þá í staðinn." Þetta varð raunin og í raun var þetta hálfgerð raun. ég hugsaði um það á næturnar að læðast fram í tölvu og krota örlítið, bara smá um gleði mína og hamingju með toppinn. Ég hætti í vinnunni og tók upp á því að stunda líkamsrækt. Good times Good times.

Háttvirtur Bragi reit 15.06.04 11:49 | TrackBack
Háttvirtir rituðu:

Hættur í vinnunni? ætti það ekki frekar að vera vinnunum? Því það telst ekki afrek að hætta í vinnunni ef maður er í 3 vinnum .. ;)

Athugasemd eftir Ausa reit 16.06.04 10:12

Ég hætti í einni af fimm vinnunum mínum. Í mínum ofurduglega huga telst það mikið afrek.

Athugasemd eftir Bragi reit 16.06.04 10:37
Hjarta mitt gleðst ef ritar þú:









Muna eftir mér?







Frá 25. apríl 2003