jún. 06, 2004

Loksins finnst mér ég búa í lýðræði.

Þakka þér kærlega fyrir Herra Ólafur Ragnar Grímsson. Þú hefur sýnt okkur það að íslensk þjóð á hetjur á óvæntum stöðum. Nú mun stjórnin svara til saka fyrir þær slæmu ákvarðanir sem hún hefur tekið. Í dag búum við öll í lýðræði og mér líður betur í dag en nokkurn tíma áður.

Háttvirtur Bragi reit 02.06.04 16:29 | TrackBack
Háttvirtir rituðu:

Ert alveg viss um að hinn vitlausa, heimska þjóð, Íslendingar, muni refsa stjórninni? Sjáum til. Að mörgu leyti gleðilegt samt

Athugasemd eftir Fraiser reit 02.06.04 16:40

Það var mál til komið að íslenskur forseti beitti neitunarvaldinu, og þó fyrr hefði verið. Bara verst að tilefnið skuli vera jafn ómerkileg lög og þessi eru, a.m.k. í samanburði við ýmis önnur sem áður hafa flotið óáreitt gegn um...

Lesið meira hér. Már Örlygsson, 02.06.04 17:08

Sammála þér Már. Hinsvegar má ekki gleyma því að þetta mál eitt og sér er ekki aðalatriðið. Aðalatriðið er hin lýðræðislega þróun sem gæti átt sér stað í framhaldi af þessu. Hvernig mun hið beina lýðræði virka? Ég hef alltaf trúað því að beint lýðræði í stórum málum sé nauðsynlegt. Meiri sátt geti skapast um þau mál ef þjóðin fær að leggja dóm á þau. Hins vegar má ekki ofnota þetta tól. Við gætum verið á barmi þess að slík aðferðafræði verði virk í íslensku samfélagi.

Athugasemd eftir Bragi reit 02.06.04 19:39

Hæstvirtur Bragi, varstu að ávarpa mig? ....sgil ekki.

Athugasemd eftir Már reit 02.06.04 19:59

Jú sjáðu til, ég hélt að þetta væri comment frá þér en ekki tilvísun í grein inni á blogginu þínu. Þ.e. comment #2 hérna fyrir ofan.

Athugasemd eftir Bragi reit 02.06.04 20:45

Power to the people !

Athugasemd eftir Valli reit 02.06.04 21:40

The power of love vs. the love of power!

Athugasemd eftir Stebbi reit 03.06.04 05:57

Athyglisvert... þegar ég las kommentið þitt (og skrifaði mitt) þá sást trackback bakvísunin frá mér ekki. Veit ekki hvað gæti valdið. Líklega eitthvað rebuild rugl í MT.

Athugasemd eftir Már reit 03.06.04 20:16

Segjum nú sem svo að þjóðin rassskelli Dabba og félaga með því að hafna frumvarpinu. Verður þá ekki bara komið með nýtt frumvarp í haust? Frumvarpi sem kann að líta betur út en er með fullt af agnarsmáu letri og neðanmálsgreinum. Ég held að það þurfi í það minnsta að fylgjast náið með þessum furðufuglum næstu mánuði.

Athugasemd eftir Baldur reit 07.06.04 15:16

jamm, þetta er allt gott og blessað en hvar var neitunarvaldið, þegar að (and)öryrkjalögin fóru í gegn.

Mér finnst þetta ómerkilegt mál miðað við það, en til að líta á björtu hliðarnar nú er komið fordæmi fyrir því að forseti not þetta blessaða neitunarvald, og vonandi að ríkisstjón taki það með aðeins meiri alvöru næst þegar þeir ætla að senda eitthvað bull í gegnum alþingi.

Athugasemd eftir zato reit 08.06.04 08:49
Hjarta mitt gleðst ef ritar þú:









Muna eftir mér?







Frá 25. apríl 2003