jan. 01, 2004

Hundfúll og reiður

Nú er ég bálreiður. Helvítis vítisspamarar hafa lagt síðuna mína undir sig og commentað í hvert einasta hólf. Og ekki nóg með það heldur er Ríkissjónvarpið svo duglaust og hugmyndasnautt að fá tvo pólitíkusa til að ræða um skipulagsmál Miðborgarinnar. Pólitíkusar hafa sjaldan eða aldrei haft góðan smekk á því hvað heitir gott skipulag þegar kemur að öðru en kosningabaráttu. Hanna Birna gegn Steinunni Valdísi. Afhverju fá þeir ekki sjávarlíffræðinga til að ræða áhrif litrófsins á þroska ungabarna!!!

Háttvirtur Bragi reit 28.01.04 19:32 | TrackBack
Háttvirtir rituðu:

múhahhaha... Það þarf lítið til að gera mann reiðan þegar maður er svona þreyttur... ekki satt?

Athugasemd eftir Ausa reit 28.01.04 21:44

Nokkuð hefur borið á spam skeytum í svarhölum vefdagbóka venjulegs fólks út um allan heim, en bloggspammerar eru fyrst og fremst að leita eftir ókeypis vísunum á síðurnar sínar til að bæta sýnileika sinn í Google og svipuðum leitarvélum. Sjálfur...

Lesið meira hér. Már Örlygsson, 29.01.04 00:17
Hjarta mitt gleðst ef ritar þú:









Muna eftir mér?







Frá 25. apríl 2003