Við erum meistarar! Við erum meistarar! Gott á alla hina. Ahhhhhhhhhh Það er gaman að halda með United í dag og fleiri gleðifréttir eru þær að Stoke náði að halda sér uppi í fyrstu deildinni. Þetta var fyrsta og eina íþróttatengda blogg sem ég hef skrifað. Vonandi munu þau verða fleiri í kjölfar sigra United í meistaradeildinni að ári og fleiri ósigruðum titlum strákanna hans Fergusons.
Annars þá auglýsi ég eftir tveim til þrem dögum ef einhver sér fram á að hafa nægan tíma. Það væri fínt að skeyta þeim inn á milli mánudags og þriðjudags um miðnætti. Kominn í tímahrak hvað ritgerðir og próf varðar. Þetta reddast samt alltaf.
Finnst ótrúlegt að VG skuli vera að benda á tölfræðigögn um nauðganir sem segja að 10-20% af öllum karlmönnum á Íslandi hafi og muni fremja nauðgun. Síðan sverja þau af sér að innan VG séu nauðgarar. Veit ekki hvað mér á að finnast um þetta. Farinn að læra.
Áfram Liverpool! Ian Russ er bestur! Sjónvarp á fimmtudögum! Inn á með Berta útaf, með dómarann!
Athugasemd eftir Logan reit 05.05.03 17:05Þetta sýnir nú bara fátæktan skilning fjölmiðla og Hollywood áherslurnar þegar þeir fara að snúa jafn alvarlegu máli sem VG reyndi að koma á framfæri, upp í svona "grín". Málefni voru af skornum skammti - aðal málin: buddur kjósenda og gylliboð til fábjána...mun B koma sínum velferðarmálum í framkvæmd eða sleppa með það fyrst þau ganga að samningaborðinu. B og S væri svo langtum nær lagi.
Athugasemd eftir Gaui reit 12.05.03 21:42