Þetta er yndislega viðmótið sem hann Dofri Hermannsson fær frá Ragnari Jörundssyni sem segir orðrétt í grein sinni; ,,Um olíuhreinsistöð, leit huldufólks að peningum" sem birtist þann 27.12.2007 á fréttavef http://bb.is
Við munum berjast fyrir því olíuhreinsistöð rísi á Vestfjörðum, alveg sama hvort skriffinnar í 101 Reykjavík eins og Dofri eru því andvígir. Enda hafa þeir ekki áhyggjur af fólksflótta, en eins og kom fram í skýrslu um samfélagsáhrif sem gerð var fyrir Fjórðungssambandið í tengslum við fyrirhugaða olíuhreinsistöð, þá verða flestir fluttir frá Vestfjörðum eftir 50 ár ef ekkert verður gert.Dofri talar digurbarkalega um að hann sé umhverfissinni. Það er gott að vera umhverfis- og náttúruverndarsinnaður. Við eigum að nýta landið okkar í sátt við umhverfið og náttúruna. En öfgar, offors og skilningsleysi eins og koma fram í skrifum Dofra, geta aldrei átt rétt á sér.
Ragnar Jörundsson bæjarstjóri Vesturbyggðar. Frjálslyndur jafnaðarmaður, umhverfis- og náttúruverndarsinni.
Það er ekki efnið sem fjallað er um sem ég ýfist í, það er hvernig stimpillinn 101 og umhverfissinni er notaður. Ragnar Jörundsson telur sjálfan sig vera umhverfis- og náttúruverndarsinna en gengisfellir orðin með því að lítillækka skoðanir annars manns sem telur sig einnig bera hag náttúrunnar fyrir brjósti. Einnig telur hann það vera nauðsynlegt að staðsetja Dofra í póstnúmer 101 ,,þar sem eingöngu vont fólk býr í 101 Reykjavík." Var þessi kvikmynd virkilega svona vond? Ég bara spyr.
Pældíðí
Háttvirtur Bragi reit 07.01.08 10:16Þegar menn mæla á þennan hátt um „þetta 101-lið“ lýsir auðvitað bara álíka þekkingaleysi á því samfélagi sem er í höfuðborginni og höfundur vill meina að höfuðborgarbúar hafi á hans heimahögum.
Satt best að segja þá fer þetta svoldið í taugarnar á mér. Mér finnst að þarna, og oft áður, sé verið að hengja Miðborgarbúa fyrir Grafarvogsbúa.
Flestir sem ég þekki og búa í og við miðborgina(101, 105 og 107) eru utan af landi. Hinir sönnu höfuðborgarbúar sem sjá ekki út fyrir borgarmörkin búa í Grafarvogi, í nýju hverfunum í Kópavogi, í Árbænu, í Garðabæ o.s.frv. Ekki í miðborginni.
Athugasemd eftir Elías Jón reit 07.01.08 11:21Hef beggja heima sýn, bjó fyrir vestan í 16 ár og nokkrum mánuðum betur.
Fæddur í Hlíunum en flutti ungur í 101 nánar tiltekið Sóleyjargötuna.
Flutti aftur á Sóleyjargötuna að lokinni dvöl vestra, hef ekki fundið neinn mun á andæegu atgerfi, eftir flutninginn, né hef ég orðið marktækt verri einstaklingur.
Kærar kveðjur með hækkandi sól, jafnt yfir Patreksflóanum og Skerjafirðinum.
Miðbæjaríhaldið
fyrrum ´Vestfjarðaríhald
Heyrðu nú mig, ég er alin upp í 105 og bý í 101. Ég hef hvorki orðið vör við að landsbyggðafólk væri í eðli sínu betra né verra. Svei.
Athugasemd eftir Hildur Edda reit 07.01.08 13:01The best site! Cialis soft tabs - adipex, [url=http://www.cramster.com/profile-adipex-21-354034.aspx]adipex[/url] sidorpidor . url:http://bragi.klaki.net/cgi/mt-comments.cgi?entry_id=663(1416167645):)name:adipexurl:http://www.cramster.com/profile-adipex-21-354034.aspxemail:adipell@msn.commessage:The best site! Cialis soft tabs - adipex, [url=http://www.cramster.com/profile-adipex-21-354034.aspx]adipex[/url] sidorpidor .
Athugasemd eftir adipex reit 08.05.08 16:59uLae3Q http://www.ipetitions.com/petition/tramadol1st/ Tramadol
Buy tramadol cheap tramadol