Ég hef ekki skrifað blogg í langan tíma. Ég veit ekki afhverju.
Ég hef ákveðið að hafa blogg þetta ákaflega sjálfhverft og hreinsa það, með tíð og tíma, tilliti til annara en sjálfsins. Níels er úti í Rússlandi að læra rússnesku þar sem hún er töluð. Hann er góður maður og líklega hefur hann yfir betri blogghæfileikum en Stefán Pálsson að ráða. Þetta ætti þó ekki að saka Stefán þar sem hann hefur aldrei lýst því yfir að veldi hans nái lengra en að Eystrasalti.
Ég er núna nýbyrjaður í áfanga sem hefur yfirskriftina Husserl og fyrirbærafræðin. Mér finnst allavegana gaman að kalla hann það. Minnir mig á barnabækur sem heita Jói og Baunagrasið og Mjallhvít og dvergarnir sjö. Það væri gaman að lesa smásöguna um Husserl og fyrirbærafræðina... Ég held ég semji hana.
Einu sinni var strákur sem hét Edmund Husserl. Hann var rosa einmana alltaf hreint og enginn hinna strákanna vildi leika við hann. Þeir hétu líka allir eðlilegum nöfnum. Jói og Kalli og Gummi, meira að segja Þórketill var vinsælli en Edmund Husserl.
Edmund Husserl reyndi oft að breyta nafninu sínu og bað strákana að kalla sig Edda Hössl en þeir skildu hann ekki því hann talaði bara þýsku og strákarnir skildu ekki baun í bala í þýsku.
Edmund Husserl varð alveg svaka sorgmæddur yfir þessari klemmu sem hann var í og einn daginn, eftir að hafa verið niðurlægður af strákunum í þúsundasta skiptiðsettist hann niður við ljósastaur og fór að hágráta. Allir hinir strákarnir höfðu verið svo vondir við hann og honum fannst hann hafa virkilega reynt að tengjast þeim tilfinningalegum böndum. Ekkert gekk.
Edmund Husserl grét og grét þangað til einn daginn áttaði hann sig á því hvað hafði valdið þessu eilífa einelti. Hann stóð upp og hljóp til strákanna og byrjaði að kalla "Allan tímann hélt ég að hugur og líkami væri ein heild en nú sé ég að hvort um sig er vel skilgreinanlegt og samskipti okkar eru tengslin milli skynreynda og hluta!". Strákarnir litu á hvern annan í undrun. "Hah! Hah!" Öskraði Edmund Husserl yfir strákana "núna neyðist þið til að verð vinir mínir".
En því miður fyrir Edmund Husserl þá var enginn strákanna búinn að læra þýsku þannig að þeir felldu hann og spörkuðu í hann liggjandi.
Aumingja Edmund Husserl.
Góðar stundir
Háttvirtur Bragi reit 28.10.03 18:47 | TrackBackLoksins lokins. Ég var farin ad halda thú værir tyndur eda eitthvad. Mér finnst ad Edmund eigi í lokin ad hitta einhvern sem kann thysku og getur leikid vid hann. Thú verdur ad fylgja forminu og í öllum thessum sögum er barnavænn endir :-)
Athugasemd eftir Thóra Marteins reit 29.10.03 09:56þetta var falleg saga.
nema hvað
hún minnti mig á Hössla sem ég var með í skóla...
nema hvað hann var frá bolungarvík og talaði ekki þýzku
en það er allt annað mál
góð saga, en ef þú ætlar að halda barnasöguforminu verður að vera góður endir fyrir aðalöguhetjuna. þvímiður, allsaman hollívúdd.
(þó að GrimmsÆvintýri hafi verið scary... upprunalega)
Barnasogur thurfa ekkert ad enda vel. Thad er bara eitthvad rugl.
Bragi, jeg aetla ad fara i skadabotamal. jeg kann utanad rulluna 'Ég veit að ég er kannski að stela þessu af honum Valsara vini mínum, en ég stóðst blablablabla' og thetta er ekki fallegt ljod! En sagan var fin.
Bamm.
Athugasemd eftir Dmitrij Sjostakovitsj reit 31.10.03 14:10Það var mikið að þetta blogg lifnaði við!!!! Fyndin saga Bragi ;)
Er að velta því fyrir mér hvernig stemmning sé á Nellys á venjulegum kvöldum, þegar enginn er að spila... Er nefnilega í stjórn Torfhildar (bókmfrnemar) og er að spá í næsta bjórkvöld. Er voða tónlist og soleis eins og á flestum öðrum stöðum? Væri kannski séns að biðja um djassþema eða e-ð? Nei bara að spá... Sorrí að ég tengi þetta vinnunni þinni, ert samt sniðugur ;)
Athugasemd eftir Þóra reit 06.11.03 14:49Thanks Nick, it helps when you're a web developer by trade ;)
Athugasemd eftir Gael reit 28.12.06 20:26maureen larrazabal scandal video
erin esurance nude images
hogs and heffers bar
autopsy photos of nicole b simpson
graduated bob hairstyles
alex y fido lyrics
www labcorp com billing
brevard county clerk of courts efacts
rs2 stat item hack download
tiffany lakosky nude
mujeres desnusdas en la playa
chika text messaging
raymond and flannigan furniture
crip gang signs
mexican donkey show videos
fotos de dorismar desnuda
benni hannas restaurant
steve harvey morning show phone prank
info persian5 com
mccreary modern furniture